Klöppum fyrir Færeyingum.

Þetta er alveg ótrúlegt, Færeyingar að bjóðast til að lána okkur. Þeir eru svo sannarlega bræður okkar, ég vona að við Íslendingar gleymum ekki þessu.
mbl.is Færeyingar vilja lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki marktæk spá.

Skil ekki alveg svona spár, það veit ENGINN hvernig þetta fer allt saman hjá okkur það er jú verið að vinna í þessu öllu hópur sérfræðinga og svo kemur þetta 20 prósenta verðbólga, held að þetta sé ekki gott að koma með þetta núna það er víst nógu slæmt ástandið hjá okkur, kannski er ég bara í bullandi afneitun á þetta allt saman.
mbl.is Spá yfir 20% verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er þetta að koma.

Allt annað að opna síðurnar á mbl og vísi, nú sé ég fréttir af daglega lífinu eins og við þekkjum það, ekki þetta endalausa krepputal. Ekki þar fyrir að auðvitað ber fjölmiðlum landsins skylda til að flytja okkur allar nýjustu fréttir en æi var orðinn nett leiður á þessu krepputali.

Nú er það nýjustu hjá okkar Ríkisstjórn, koma okkur inn hjá öryggisráði, hum til hvers ég bara spyr. Væri mikið meira vit í að einbeita sér ennþá meira að uppbyggingu landsins. Til dæmis að leyfa þjóðinni að taka meiri þátt í endurreisn landsins.

Það mætti koma fyrir hugmyndakassa á Ingólfstorgi og allar hugmyndir skoðaðar, það er nefnilega fjöldin allur af efnilegu fólki með margar og góðar hugmyndir, af hverju ekki að stofna nefnd sem væri með í þessu það hafa nú verið stofnaðar nefndir yfir öðru eins, hafið góðan dag kæru landsmenn.


Úr mínus í plús.

Var að spjalla við félaga minn í dag og hann sagði mér að hann hefði skellt sér á námskeiðið úr mínus í plús, jú jú sagði hann flott námskeið og margt sniðugt sem þarna kom framm og kæmi honum til góða í peningaóreyðuni hjá honum en að námskeiði loknu þegar að því kom að greiða fyrir þetta þá var fólkinu boðið uppá það að greiða með Visaraðgreiðslum fyrir þá sem ekki voru með handbært reiðufé.

Félaga mínum fannst þetta nú dálítið fyndið þar sem að á námskeiðinu var tekið framm að henda öllum kortum og ef hann endilega vildi halda í sitt ástkæra Vísakort að alls ekki kaupa neitt á raðgreiðslum þar sem vextir væru fokdýrir sem þeir eru.

Ég efast ekki um að þessi námskeið eiga fyllilega rétt á sér og eru stórsniðug fyrir þá sem á þeim þurfa að halda.

Ég sel þessi ummæli félaga míns ekki dýrari en ég keypti og alls ekki á Vísarað.


Fáum lán hjá Rússum.

Held að það væri stórsniðugt að lána Rússum Keflavíkurflugvöll í ca 10 ár eða svo gegn því að þeir láti okkur hafa smá aur í staðinn, það væri líka dálítið gaman því þá yrðu Bandaríkjamenn dálítið langleitir.
mbl.is Fundað stíft með IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju stelpur.

Jæja það hlaut að koma að þessu, nú reynir á ykkur stelpur,vonandi verður ekki sama ruglið með launin ykkar og forvera ykkar Lalla Suðu og hinna, en ef þið takið vel til í bönkunum tja þá er svosem ekkert að því að borga ykkur 4 til 5 kúlur á mánuði eða svo.
mbl.is Birna verður væntanlega bankastjóri Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja legg til að Ríkisstjórnin hvíli sig eftir orrahríðina undanfarið.

Það hlýtur að vera gífurlegt álag í rikisstjórn landsins þó sérstaklega Geira, en vonandi er séð fyrir endann á þessu öllu undanfarið. Það skal tekið fram að þetta er EKKI  skrifað sem háð á Ríkisstjórnina okkar en það er ekki þar með sagt að ég sé alltaf sammála hvað stjórnin er að gera eða réttara sagt ekki að gera, hver sem ber sök á öllu þessu fjárhagsrugli undanfarið tja það kemur örugglega í ljós fyrir rest.

Góðan daginn kæru landsmenn.

Jæja dagur eitt í bjartsýni og von, nú eru blessaðir Rússarnir að koma okkur til bjargar, ég var spá hvað Björgólfur væri að gera í Ráðherrabústaðnum hum það skildi þó ekki vera tengt þessu láni frá Rússum? jæja hvað um það ég óska krónunni alls hins besta með von um bjarta framtíð.
mbl.is Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlaut að koma að þessu.

En nú er bara málið að koma minnihluta stjórn að og moka stjórn Seðlabanka út og nýtt blóð inn, ástandið versnar varla úr þessu. En æi veit ekki myndi ekki vilja vera í sporum Geira í dag, en það segir sig sjálft að ríkisstjórnin reddar okkur ekki út úr þessum hremmingum á einni helgi.
mbl.is Lokað fyrir viðskipti með bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi lærum við af þessu.

Við fórum of geist í fjárfestingar og lántökur það má kannski segja að það sé allsherjar hreinsun í gangi á mörkuðum Íslands, það var allt of mikið af fyrirtækjum sem fjárfestu og fjárfestu og litlir sem engir peningar á bak við það.

Það hlaut að koma að þessu en það þíðir ekki að reyna í sífellu að finna einhverja sökudólga í þessu, nú er bara um að gera draga skútuna aftur á flot og fara varlega í öllum fjárfestingum.

Ef krónuni yrði líkt við manneskju þá myndi ég lýsa henni sem viðkvæmri sál sem yrði að umgangast með mikilli varúð.


mbl.is Rætt við norræna seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband