Mótmælin á Austurvelli.

Ég undraðist þegar ég sá fréttir um mótmælin í gær, lögreglan að hörfa undan liðinu, hum ég gat nú ekki séð það það urðu smá stympingar á milli fáeina aðila og lögreglu þegar gaurinn á þakinu á Alþingishúsinu var að reyna komast niður.

Mér fannst lögreglan sína ótrúlega yfirvegun miðað við aðstæður, við félagarnir spjölluðum við Geir Jón og ekki var nú æsingurinn í honum né hans mönnum, nú hvað varðar eggjakastið á Alþingishúsið eins og Geir Jón komst svo skemmtilega að orði við einn fréttamannin, ef fólk finnur þörf fyrir að kasta eggjum og fær útrás við það þá gerir fólk það bara.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband