Passa mig á.

Að vera í hreinum nærfötum ef þessi heimsendir skellur á, en annars án gríns hvað er málið með þessa tilraun? ok kannski komast þeir að því hvernig þetta allt byrjaði og hvað svo?
mbl.is Vekja athygli á heimsendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hámarkshraði of lár á Íslandi.

Þessar hraðakstsursfréttir af "túristum" hér á landi gefa okkur ákveðinn skilaboð, það eru vegir og oft á tíðum aðstæður sem leyfa meiri hraða, kannski ekki 149 en 120 er ekki fjarri lagi.

Ef við skoðum aðeins búnaðinn og umgjörðina, betri bílar betri dekk betri vegir. Ég er nánast viss um að flest slys megi rekja til gáleysis ökumanna ekki of mikils hraða vissulega er hraðanum einnig um að kenna en ekki svona oft eins og fjallað er um það er svo margt í dag sem truflar ökumenn t.d farsímar, það bara kemst ekki alltaf upp að símanum hafi verið um að kenna, ökumenn myndu ekki segja við lögreglu tja ég sá ekki bílinn vegna þess að ég var að kjafta í símann eða senda sms.


mbl.is Tekinn á 149 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg magnað með hann Óla.

Lækka hraðann? get ekki betur séð en að hraðinn sem nú er leyfður beri ekki þennan umferðaþunga sem þarna er oft á tíðum. Allt sumarbústaðalið og þetta er jú hluti af þjóðvegi 1. Held að það væri meira vit í að bæta veginn taka þessa hlykki í burt og gera veginn meira notandavænni.
mbl.is Lækka þarf hámarkshraðann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju fara olíufélögin svona með okkur?

Þurfa þeir að hafa verðið svona svimandi hátt? held ekki. Það segir sig sjálft að ef þeir droppa verðinu aðeins niður þó ekki væri nema um 20 kall að þá seldu þeir töluvert meira, þetta snýst allt um það ekki satt?
mbl.is N1 lækkar eldsneytisverð á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækka hámarkshraðann.

Ekki ljúga myndavélarnar, þetta sýnir bara að hámarkshraðinn er of lár, en svo er spurning ef þeir hækka hraðann þarna í 80 hvort ökumenn keyri þá ekki bara gegnumsneitt á 100?
mbl.is Á 147 km hraða á Hringbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Vestmannaeyingar.

Með vel heppnaða þjóðhátíð. 12 til 13 þús manns í dalnum og eitthvað um pústra og smáræði af dópi tja óhætt að segja að þetta gerist varla betra.
mbl.is Erilsamt hjá lögreglu í Herjólfsdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnur hann fyrir þessu?

Tja það er spurning er það mögulegt að nokkur maður geti verið 62 mills virði á mánuði?
mbl.is Með 62 milljónir á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háhyrningar eða Killer whales.

Sjálfsagt hefur þetta verið dálítið óhugnanlegt að horfa upp á þetta sjónarspil en öllu verra finnst mér þegar Háhyrningar eru að leika sér með selina, henda þeim á milli sín þangað til þeir drepast. Mönnum ber ekki saman af hverju þeir henda þeim svona á milli sín en sumir segja að þeir geri þetta til að brjóta í þeim beinin til að auðvelda meltingu en aðrir segja að þetta sé hreinlega leikur í þeim en hvort sem er að þá er selurinn dauðadæmdur en þetta er víst lögmál nátturinnar.     


mbl.is Hrefna barðist fyrir lífi sínu við hóp háhyrninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt rugl.

Það verður bara að skipa nefnd um málið, en hvernig væri að bæta ástandið strax og hætta þessu bulli, varla er fólk að ljúga um ástandið.


mbl.is Skrásetja klósettferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef enga trú á því.

Að þessi orð Bubba hafi verið beint að Björk eða Sigurrós, hef nú frekar trú á því að hann hafi meint tónleikar sem slíkir.
mbl.is Bubbi liggur undir ámælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband