Ha biðröð á Korputorgi?

O jæja mikið er ég glaður fyrir þeirra hönd það eru þá ekki allir blankir í þessu landi. Kannski að liðið ætli að vera dálítið útsjónarsamt og slá tvær flugur í sama höfuðið og versla jólagjafirnar núna á fínum prís gott mál.
mbl.is Mikill áhugi á nýrri verslunarmiðstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Förum nú varlega.

Að trúa forstjóra N1, þetta gæti verið sölutrikk hjá þeim, en ef rétt reynist vera að þá er þetta grafalvarlegt mál að sjálfsögðu.
mbl.is Hætta á að landið verði olíulaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sennilega með betri hugmyndum sem Davíð hefur fengið.

Þetta er alls ekki fjarri lagi, loka okkar bestu menn í fjárlögum inn í herbergi og þeir koma ekki út fyrr en einhver glóra er komin í þetta rugl sem nú ríkir í landinu okkar.
mbl.is Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun á MBL

Legg til að ritstjóri mbl hætti með öllu að fjalla um þessar sífelldu hækkanir hjá oliufélugum landsins.

Þetta er eiginlega ekki fréttnæmt lengur og að í næsta skipti sem mbl kemur með frétt af þessum blessuðu oliufélugum verði þegar verðið á bensíni er komið niður fyrir 130 jamm og jæja hvenær sem það verður ef það verður.


mbl.is Eldsneytisverð hækkar umtalsvert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað hægt að gera?

Nú les ég daglega á mbl og vísir og hvað þeir heita allir þessir fjölmiðlar, ætlar ríkisstjórnin ekkert að gera í þessari kreppu? allar bloggsíður uppfullar af þessari umræðu eðlilega, fólkið í landinu er augljóslega óttaslegið um framtíðina.

Ég var að spjalla við gamlan mann um daginn sem hefur lifað nokkrar kreppur, hann brosti nú af öllu þessu krepputali hjá mér og sagði hvað ertu að væla maður þetta er ekkert miðað við kreppuna árið eitthvað fyrir guð má vita hvenær, hum já já sagði ég en þetta er samt ömurlegt ástand í landinu, jamm kannski sagði sá gamli en hvað á ríkisstjórnin að gera svosem? held að þetta sé eitthvað sem þeir háu herrar ráða ekki við sagði sá gamli og hellti sér meira kaffi í bollann.


mbl.is Krónan veiktist um 5,3%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tók ríkisstjórnin rétta ákvörðun?

Held það, ef ekki hefði komið til þessara framkvæmda að hálfu Geira og félaga þá hefði Glitnir farið í greiðslustöðvun og það hefði verið alvarlegt mál þannig að ég styð þessa ákvörðun.

Ég er ekki sjálfstæðismaður en með öll mín viðskipti í Glitni þannig að kannski er ég ekki alveg hlutlaus í þessu máli. Vonandi fyrir okkur íslendinga fer ástandið að lagast verðum við ekki bara að trúa því. 


mbl.is Erfiðir gjalddagar framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan veikist og veikist og veikist.

Hvursu lengi getur þessi blessaða króna okkar veikst? hún hlítur að fara að drepast.Ég nenni nú ekki að tuða yfir aðgerðaleysi Ríkistjórnar okkar það er nú eins og það er en þetta getur ekki gengið svona endalaust það þarf svosem engar reikningshaus til að sjá það.

 


mbl.is Krónan í frjálsu falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkan Orkan Orkan.

Þar ætla ég að versla bensín, þó svo að ég sé með afsláttarkort hjá N1 að þá versla ég núna hjá Orkunni þó að sé ekki til annars en að sína þeim hjá Orkunni samstöðu í lægra verði.
mbl.is Eldsneyti hækkar um 3-6 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögregluríki?

Neeei held ekki, ég hef nú oft sagt við vini mína að lögreglan væri nú ekki öfundsverð af sínu starfi, og þá er ég ekki endilega að meina þessi lúsarlaun sem þessir menn hafa heldur hitt hvernig framkomu þessum mönnum er sýnd eins og fram kemur í fréttinni.Sjálfur hef ég bölvað löggunni í sand og ösku en þá er það nú oftast vegna aksturslags míns og varla er það nú þeim að kenna.

En það er svo skrítið með okkur mannfólkið að þessir sömu menn sem sína yfirvaldinu óvirðingu og jafnvel niðurlægingu hvert hringja þeir þegar eitthvað kemur uppá hjá þeim sjálfum jú jú einmitt í sína heittelskuðu lögreglumenn , þetta er nú dálítið grátbroslegt ekki satt?

 

 


mbl.is „Ég skal drepa konuna þína!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert má nú.

Hvaða læti eru þetta þó að kellinn hafi aðeins fengið sér í tánna. Spurning hvort naríurnar hans endi á uppboði á ebay eins hjá sumum.
mbl.is Gert að segja af sér eftir dansatriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband